Guðríður Sveinsdóttir fæddist á Ásum í Skaftártungu 22. nóvember 1908. Hún lést á Landspítala – háskólasjúkrahúsi Landakoti 18. apríl síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Sveinn Sveinsson, bóndi, f. 5. desember 1875 í Hörgsdal á Síðu, d. 14. janúar 1965, og Jóhanna Sigurðardóttir, f. 21. október 1879 á Breiðabólstað á Síðu, d. 2. júní 1968. Guðríður átti ellefu systkini sem náðu fullorðinsaldri. Átta þeirra eru nú látin. Þau eru Sigursveinn, Gyðríður, Runólfur, Sveinn, Páll, Guðmundur, Sigríður og Kjartan. Eftirlifandi systkini eru Róshildur, Ingunn og Gísli.

Guðríður var tvígift. Fyrri maður hennar var Frímann Helgason, verkstjóri, f. 21. ágúst 1907, d. 29. nóvember 1972. Þau gengu í hjónaband 1. október 1932 og eignuðust eina dóttur, Hönnu, f. 25. ágúst 1936. Maki Hönnu er Heiðar Ástvaldsson, danskennari, f. 4. október 1936 og er sonur þeirra Ástvaldur Frímann f. 14. janúar 1973. Guðríður og Frímann slitu samvistum 1938.

Hinn 29. maí 1943 giftist Guðríður Lofti Guðmundssyni, ljósmyndara, f. 18. ágúst 1892, d. 4. janúar 1952. Guðríður vann ýmis störf en lengst af hjá Loftleiðum, síðar Flugleiðum, eða þar til hún lét af störfum 70 ára.

Útför Guðríðar fer fram frá Dómkirkjunni á morgun, mánudaginn 29. apríl, og hefst athöfnin klukkan 13.30.

Senn er gengin sól til viðar sigin bak við fjallsins tind. Hennar geislum heitt þú unnir, hún var sjálf þín fyrirmynd; hugans styrkur, hjartans lind Hillir upp í aftanskini ævistarfið mikilsvert. Þó er lagst í þagnargildi það, sem allra best var gert verður aldrei opinbert. (Heiðrekur Guðm.)

Senn er gengin sól til viðar

sigin bak við fjallsins tind.

Hennar geislum heitt þú unnir,

hún var sjálf þín fyrirmynd;

hugans styrkur, hjartans lind

Hillir upp í aftanskini

ævistarfið mikilsvert.

Þó er lagst í þagnargildi

það, sem allra best var gert

verður aldrei opinbert.

(Heiðrekur Guðm.)

Með fáeinum orðum langar mig til að minnast Gauju frænku minnar og góðrar æskuvinkonu móður minnar með fáeinum orðum. Þó heimshöfin skildu þær að af og til gengu hlýjar og góðar kveðjur á milli. Jafnvel dauðinn virtist ekki aðskilja þær að fullu.

Þær deildu með sér gleði og sorgum

og sagnasjóði frá bernskutíð,

frásögnum frá sveit og borgum,

um forlög manna blíð og stríð.

(G.B.J.)

Þær sóttu styrk og gleði hvor til annarrar og alltaf var stutt í græskulausan húmorinn. Leiftrandi frásagnargáfa Gauju og tilsvör gat gert hversdagslega atburði að heilli revíu og þá var hlegið dátt.

Áhyggjur Gauju urðu einnig áhyggjur móður minnar og það lagðist þungi yfir heimilið á Laugarmýrablettinum þegar hún fór með Hönnu dóttur sína 12 ára gamla til Stokkhólms í tvísýnan hjartauppskurð. Það var því mikill léttir þegar fréttist að allt hefði gengið vel, aðgerðin heppnast og Hanna staðið sig frábærlega vel.

Ég er þakklát fyrir allar minningarnar sem Gauja hefur gefið mér, einkum eftir að móðir mín dó. Hún bauð mér í hennar stað í “fýlaveislu”, með sínum nánustu vinkonum, veislu sem var alltaf mikið tilhlökkunarefni móður minnar í að komast og er einstök upplifun. En það þurfti ekki neitt sérstakt tilefni til að heimsækja Gauju, því návist hennar var alltaf góð og gefandi. Nú sakna ég allra þeirra ónýttu tækifæra sem gáfust til að koma við og ekki verður framar leitað eftir ljósi í glugganum hennar þegar ekið verður fram hjá Landakotsspítala.

Tryggð og vinátta foreldra Gauju við móður mína var einstök. Þau hjónin Jóhanna og Sveinn tóku hana unga og föðurlausa, ásamt móður og bróður inn á sitt fjölmenna heimili. Alltaf síðan báru þau önn fyrir henni og sérstakt vináttusamband var ríkjandi þar á milli sem kom greinilega fram í ræðu sem Sveinn flutti í fermingarveislu minni sem var einnig fimmtugsafmælisveisla móður minnar.

Kæra Hanna mín, Heiðar og Ástvaldur, ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur og bið þess að tómarúmið sem nú hefur myndast fyllist af þeim kærleika sem hún bar til ykkar.Hin ljúfa minning angar eins og reyr.

Um andann leikur heitur sunnanþeyr,

en himnar blána, heimur birtist nýr,

er hugann fyllir von – sem aldrei deyr.

(Davíð Stef.)

Blessuð sé minning Guðríðar Sveinsdóttur.

Guðríður Bryndís Jónsdóttir.

Hún Gauja frænka okkar elskuleg er látin á 94. aldursári. Gauju kynntumst við lítið fyrr en við bræður ásamt móður okkar flytjum frá Gunnarsholti, eftir lát föður okkar 1954. Fjölskyldur foreldra okkar sem bjuggu í Reykjavík tóku okkur opnum örmum og hjálpuðu okkur á alla lund, en Gauja tók sérstöku ástfóstri við mig, yngsta bróðurinn, og kallaði mig spekinginn sinn.

Gauja var Skaftfellingur í húð og hár og alin upp í stórum systkinahópi á Ásum í Skaftártungu og síðan á Norður-Fossi í Mýrdal. Margar sögur fengum við að heyra af þessum árum frá Gauju frænku og ekki síður voru sagðar af henni sögur þegar hún síðar meir stóð fyrir svokölluðum fýlaveislum, en þá var eldaður saltaður fýll úr Mýrdalnum og aðeins boðið þeim sem kunnu að meta þennan sérstæða mat. Gauja frænka sagði okkur sögur frá uppvaxtarárum sínum og harðri baráttu við náttúruöflin eins og þegar Katla gaus og þau systkinin rökuðu öskuna af túninu á Ásum í Skaftártungu og hvernig þau ung að árum rökuðu heyið blaut í fæturna af mýrunum fyrir neðan Norður-Foss í Mýrdal. Hún sagði okkur einnig hvernig það var fyrir móður hennar að reka heimili með 12 börnum og miklum gestagangi þar sem fjölskyldufaðirinn bauð alla velkomna og fylgdi einatt mönnum síðan yfir sandana og árnar sem þá voru óbrúaðar og þurfti til þessa samhenta fjölskyldu eins og þau hjón voru. Þessi systkinahópur var einstaklega sterkur og samheldinn og hefur kennt okkur öllum að meta fjölskyldubönd framar öllu öðru.

Gauja vann lengstum í flugeldhúsi Loftleiða og þótti góður og traustur starfsmaður. Hún var myndarleg kona og hélt ávallt reisn sinni, þó að á síðari árum tæki heilsan að þverra og sjóndepra að gera vart við sig. Hún var ákveðin í að vera eins lengi og hún gat á heimili sínu á Bárugötunni, en síðar flutti hún á Landakotsspítala og dvaldi þar til yfir lauk í ákaflega góðu atlæti starfsfólksins, sem það á miklar þakkir skilið fyrir. Gauja var mikil húsmóðir, átti glæsilegt heimili og hafði unun af að elda góðan mat, sem við bræðurnir fengum oft að njóta í æsku. Hún var hreinskiptin, sagði skoðanir sínar tæpitungulaust, oft nokkuð stóryrt eins og Skaftfellingi sæmir, en hjartahlý og einstaklega trygg ættingjum sínum og vinum. Gauja var jákvæð manneskja og það hjálpaði henni mikið í gegnum erfiðleika lífsins, sem hún fékk sinn skerf af.

Við biðjum góðan guð að blessa minningu Gauju frænku og sendum Hönnu, Heiðari og Ástvaldi okkar innilegustu samúðarkveðjur.

Halldór Runólfsson, bræður og fjölskyldur.

Fyrstu minningarnar um Gauju mömmu eru hlýjar og fallegar eins og hún var sjálf. Einn sólbjartan sumardag árið 1938 kom lítil stelpa til sumardvalar á Hvanneyri í Borgarfirði ásamt mömmu sinni og bláu hryssunni. Hún hljóp um á nýjum sundbol meðal heimilisfólks og skólapilta, sem lágu í sólbaði í grasinu við hlið kirkjunnar. Allt í einu stendur upp ung kona ljóshærð, bláeygð, með ólýsanlega fallegt bros. Hún breiðir út faðminn, tekur litlu stelpuna í fangið og sveiflar henni í marga hringi. Þetta var hún Gauja mín og þarna hófst ævilöng vinátta, sem aldrei bar skugga á. Gauja dvaldi þetta sumar og mörg önnur á Hvanneyri ásamt Hönnu, einkadóttur sinni, hjá systkinum sínum Runólfi Sveinssyni skólastjóra og Gyðríði systur þeirra, sem var ráðskona á búinu í fjöldamörg ár. Að hausti komu Gauja og Hanna með okkur mömmu í bæinn og bjuggu hjá okkur næsta vetur. Sá vetur er ógleymanlegur, ég átti allt í einu tvær mömmur og litla systur. Frímann, fyrri maður Gauju og pabbi Hönnu, kom færandi hendi um jólin með fínasta dúkkuhús allra tíma og fleira fallegt, sem hann hafði smíðað fyrir litlu stelpuna sína og undirrituð fékk að njóta góðs af.

Seinna giftist Gauja aftur, Lofti Guðmundssyni ljósmyndara, sem allir eldri Reykvíkingar muna. Loftur var afburða skemmtilegur maður. Hann var leikari og búktalari af Guðs náð, spilaði eins og engill á flygil fyrir utan að vera landsins besti ljósmyndari og kvikmyndagerðarmaður þeirra tíma. Það var alltaf ævintýri að koma á heimili Gauju og Lofts hvort heldur var á Sólvallagötu 9 eða á Bárugötu 5. Hlýr faðmur Gauju mömmu stóð alltaf opinn, nýbakaðar kökur og mjólkurglas komið á borðið um leið, og Loftur sprellaði við okkur stelpurnar. Snemma á stríðsárunum fóru þau hjón til Bandaríkjanna í boði Kodak þar sem Loftur kynnti sér kvikmyndagerð í Hollywood og New York. Þar dvöldu þau í tæpt ár. Gauja sagði mér oft frá því, þegar þau heimsóttu í fyrsta sinn MGM-kvikmyndaverið. Leiðsögumaður spurði Gauju hvort ekki væri eitthvað sérstakt, sem hana langaði að sjá. Hún svaraði að bragði, að hana langaði mest að hitta Clark Gable, sem þá var átrúnaðargoð allra kvenna, ungra sem aldinna. Leiðsögumaðurinn brá sér frá – og kom aftur með Clark Gable sér við hlið. Þau sátu lengi og spjölluðu um heima og geima og svo fékk Gauja auðvitað eiginhandaráritun, sem var ekki lítil gersemi.

Gauja og Loftur áttu sumarbústað uppi í Kjós þar sem gaman var að dvelja. Þar var Loftur löngum við kvikmyndatökur og eru sumar mynda hans teknar þar að hluta til. Þá var líf og fjör í Kjósinni enda gestakomur tíðar. Leikarar samtímans fóru þar fremstir í flokki með tilheyrandi gríni og alvöru. Mitt í þessu fjöri stóð Gauja við pottana og galdraði fram gómsæta rétti og er mér kjötsúpan hennar hvað minnisstæðust. Hún vann alltaf hlutina þannig að enginn varð var við að hún væri neitt sérstakt að gera og lét sig ekki muna um 20 manns í mat, ef því var að skipta. Það lék allt í höndunum á henni Gauju. Hún saumaði alla tjull- og taftkjólana fyrir jólaböllin og engar stelpur voru fínni þar en við Hanna. Þegar von var á fyrsta barninu mínu, saumaði Gauja utan um vögguna. Sú vagga varð fræg og af henni birtist mynd í Morgunblaðinu, svo einstök og falleg var hún. Eitt sinn var ég svo lánsöm að dvelja vetrarlangt á heimili Gauju og Hönnu á Bárugötu 5. Loftur var þá látinn og bjuggu þær mæðgur tvær saman. Þessi vetur verður mér alltaf minnisstæður, sambúðin ljúf og góð og mikið gátum við þrjár hlegið og gert að gamni okkar. Þessi samvera okkar verður aldrei fullþökkuð og oft höfum við rifjað upp þessa vetrarmánuði á Bárugötunni. Eftir að við Helgi giftum okkur varð Gauja kær heimilisvinur alla tíð og önnur amma barnanna okkar.

Fyrir nokkrum árum fórum við Gauja í pílagrímsför á bernskuslóðir hennar í V-Skaftafellssýslu, í Mýrdal og Skaftártungu. Við dvöldum eina helgi hjá Þóru í Hlíð, frænku og æskuvinkonu Gauju. Þar var okkur tekið með kostum og kynjum og áttum við þar ógleymanlega daga í góðum félagsskap Þóru og dóttur hennar. Við ókum vítt og breitt um sveitina í dýrðlegu veðri. Það var skemmtilegt að hlusta á þær stöllur rifja upp gamla daga, sveitaböllin og allt það margbreytilega sem ungar stúlkur undu sér við á þeim tíma. Á heimleið var staldrað við hjá Sollu mágkonu á Fossi í Mýrdal, rifjaðir upp löngu liðnir dagar og við nutum þeirrar einstöku náttúrufegurðar sem blasir við frá Fossi. Gauja bjó með fjölskyldu sinni fram yfir fermingu í Ásum í Skaftártungu en fluttist svo fermingarárið sitt að Fossi í Mýrdal. Hún bjó í Ásum árið sem Katla gaus og mundi greinilega hvar hún stóð þegar ósköpin dundu yfir. Ég þreyttist aldrei á að hlusta á þá frásögn. Hvílík lífsreynsla fyrir 10 ára stelpu.

Síðustu árin hrakaði líkamlegri heilsu Gauju minnar þannig að hún gat ekki lengur dvalið heima. Hún fluttist þá á Landakot og dásamaði oft það lán að hafa fengið pláss þar. Hún var afar þakklát öllu því góða fólki sem hún kynntist þar, fyrir góða viðkynningu og frábæra umönnun. Það var ómetanlegt fyrir mig að fá að hafa hana svona nálægt mér og að geta skroppið til hennar smástund í önn dagsins og fengið knús og smáspjall.

Gauja mín hefur kvatt okkur um sinn, en eftir lifa yndislegar minningar um góða konu, sem auðgaði líf okkar allra. Að leiðarlokum þökkum við af heilum hug ævilanga vináttu, tryggð og örlæti Gauju mömmu og ömmu. Hönnu, Valla og Heiðari sendum við innilegar samúðarkveðjur.

Hervör Hólmjárn og fjölskylda.

Elsku Gauja mín er búin að fá hvíldina, 93 ára jarðvist er lokið og ný tilvera tekur við, fegurri, betri og án þrauta.

Dugnaðarkona sem ólst upp í stórum systkinahópi, vann hörðum höndum meðan aldur og heilsa leyfðu og dvaldi sín síðustu ár í góðri umönnun starfsfólks Landspítala – háskólasjúkrahúss Landakoti. Hún Gauja “mamma” var engum lík, ótal eru ljúfar minningar, en þær geymi ég í huga og hjarta mínu.

Eitt kærleiksorð, það sólbros sætt

um svartan skýja dag,

ó, hvað það getur blíðkað, bætt

og betrað andans hag.

(Stgr.Thorst.)

Guð blessi og varðveiti elsku Gauju mína í nýjum heimkynnum. Þess biður,

Helga Kr. Bjarnason.

Guðríður Bryndís Jónsdóttir.

Afkomendur Guðríðar

ea        *Hanna Frímannsdóttir f. 25.8. 1936, d. 2.4. 2008

eaa       Ástvaldur Frímann Heiðarsson f. 14.1. 1973